Spítalavist er ömurleg.....!!!

Góðan dag......Svalur

Eins og allir vita þá er kerfið búið að vera niðri í einhvern tíma og ekkert hægt að gera......en við höfum líka verið latar við að skrifa og ætlum við að bæta úr því Hlæjandi

Það gerðist nokkuð "skemmtilegt" fyrir mig á sunnudaginn !!! Þetta byrjaði þannig að ég var með einhverja verki í kviðnum og setti ekkert útá það.....nema um kvöldið þá var ég komin með rosalega verki, ég gat ekki setið, staðið eða gert neitt án þess að finna alveg rosalega til ! Þannig að ég hringdi á læknavaktina og hún gat ekkert metið í gegnum síma, þannig að ég fór niður eftir á smáratorg. Læknrinn þukklaði á mér eitthvað þarna og vildi senda mig á bráðamóttöku á Lansanum á Hringbraut. Ég fór þangað með svona beiðni, þar tók læknanemi á fjórða ári við mér, og ekkert mál með það. Ég þurfti að gefa þvagprufu og svo ætlaði hún að taka blóðsýni úr mér og stakk mig en hitti ekki á æðina, var hún eitthvað með nálina inní hendinni að reyna að finna æðina, það var sko ekki gott Gráta svo stakk hún mig aftur við hliðina á hinni stungunni og hitti ekki í annað skiptið var eitthvað að krukka undir húðinni að finna æðina !!!!!! það tókst ekki svo að hún stakk mig í þriðja skiptið bara vinstra megin við hinar stungurnar og guess what hún hitti EKKI í þriðja skiptið, og enn og aftur var hún að krukka þarna undir og hitti á einvherja pínuæð sem gaf ekkert blóð eiginlega....!!! það var ógeðslega vont.......Micha greyið stendur þarna og lýst ekkert á blikuna, er farin að svitna og líður ekki vel, var næstum liðið yfir hann......greyið litla :D:D en svo færir hún sig hinumegin við rúmið og ætlar stinga mig í fjórða skiptið, hún ætlaði ekki að gefast upp sama hversu oft sem hún hefði þurft að stinga mig.....en hún hittir loksins á æð og það frussast allt útum allt, það var nú soldið fyndið, hehe Micha fór fram, gat ekki horft á þetta......en hann var nú ekki mjög ánægður að það væri verið að pína ástina sína svona.......Koss en ég vil bara þakka honum fyrir stuðninginn þarna og biðina.......
En allaveganna, læknarnir fundu ekkert og eftir 5 tíma bið fékk ég leyfi til að fara heim, fékk 4 verkjatöflur og læknirinn sagði að ég ætti að drífa mig heim, því það tækju verkjalyfin sirka 20 mín að virka ......þannig að ég fór bara heim og steinrotaðist......... en ég þurfti að mæta daginn eftir á kvennadeildina kl 10, vaknaði aðeins of seint en fínt með það allt.......svo fórum við Micha saman þangað og biðum í 1 klukkutíma.......svo fórum við loksins inn og þá var kvennlæknirinn þar, og hann var KALL, en ég lét mig hafa það og hann þukklaði og skoðaði mig alla, fór svo í svona sónar, hehe mjög gaman að sjá þetta allt í sónar.....:P og þá fann hann vandamálið.........og nei ég var ekki ólétt......ég var með blöðru á eggjastokknum sem hafði sprungið því að eggið var að koma niður.......ummmm ok......er það slæmt eða ekki ???? nei nei þetta er víst algengt og líður oftast hjá á sólahring.......en ég fékk verki um kvöldið daginn eftir þannig að ég átti að koma uppeftir um morguninn og átti að kíkja á mig aftur.......þar var hjúkka sem að tók blóðsýni úr mér og stakk hún mig tvisvar áður en hún hitti, þannig að ég er vel götótt........Hissa  þurfti að gefa 2 sinnum þvagsýni.....en þau sáu ekki neitt ....þetta voru semsagt bara verkir eftir blöðruna.....þannig að ég var send heim með lyfseðil .......

En nóg af þessu spítala veseni......er orðin góð og ætla í vinnuna á morgun........og stelpur ef þið fáið svona þá eigiði alla mína samúð......:S

Jæja svo má Lena líka fara að blogga og svona.......greyið að fara í próf og svona..... :D:D

Þetta er allveganna orðið ágætt blogg í bili........Stella kveður í bili............Saklaus
22. nóvember 2006 klukkan 23:06
Aðalheiður Stella Stefánsdóttir

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Atburðarteljari

Könnun

Ertu byrjuð/aður að kaupa jólagjafir ???

Klukkan

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...