09desember

Kvöldið!!!

Voða sniðugt að gera þetta til þess að drepa tímann.... 

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik/ur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út? 
09. desember 2006 klukkan 00:02
Aðalheiður Stella Stefánsdóttir
Engin athugasemd
27nóvember

Dagurinn byrjaði ekki nógu vel....

Dagurinn minn byrjaði þannig ég svaf yfir mig, en það gerist fyrir alla. Missti af báðum íslensku tímunum, en held ég hafi ekki misst af miklu. Helgin sem var að líða var bara mjög fín. Föstudagurinn var tekinn bara mjög rólegur leigt spólu. Síðan á laugardaginn vaknaði ég um hádegi. Gerði ekkert neitt af viti þennan dag, horfði bara á sjónvarpið og var í tölvunni. En svo þegar það leið seinna á daginn, þá gerði ég mig ready fyrir kvöldið. Síðan ætlaði ég að kíkja til Stellu og vera samferða henni í Ikea jólaglögg. Pála og Gunni ætluðu að hitta okkur bara þar. Loksins þegar við komum á Hressó, mjög snemma til þess að fá ókeypis bjór. Mér fannst nú ekkert voða gaman, þekkti eiginlega engan þarna. Þannig ég , Pála og Gunni ákváðum að fara á Glaumbar, í afmæli til Söru. Það var mjög gaman, og langar bara að þakka Söru fyrir frábært afmæli. Síðan eftir afmæli þá fengum við okkur bara að borða og beint bara heim.  Sunnudagurinn var bara farið í bíó, síðan bara lært. En takk bara fyrir frábæra helgi.  
27. nóvember 2006 klukkan 19:09
Aðalheiður Stella Stefánsdóttir
2 athugasemdir
22nóvember

Spítalavist er ömurleg.....!!!

Góðan dag......Svalur

Eins og allir vita þá er kerfið búið að vera niðri í einhvern tíma og ekkert hægt að gera......en við höfum líka verið latar við að skrifa og ætlum við að bæta úr því Hlæjandi

Það gerðist nokkuð "skemmtilegt" fyrir mig á sunnudaginn !!! Þetta byrjaði þannig að ég var með einhverja verki í kviðnum og setti ekkert útá það.....nema um kvöldið þá var ég komin með rosalega verki, ég gat ekki setið, staðið eða gert neitt án þess að finna alveg rosalega til ! Þannig að ég hringdi á læknavaktina og hún gat ekkert metið í gegnum síma, þannig að ég fór niður eftir á smáratorg. Læknrinn þukklaði á mér eitthvað þarna og vildi senda mig á bráðamóttöku á Lansanum á Hringbraut. Ég fór þangað með svona beiðni, þar tók læknanemi á fjórða ári við mér, og ekkert mál með það. Ég þurfti að gefa þvagprufu og svo ætlaði hún að taka blóðsýni úr mér og stakk mig en hitti ekki á æðina, var hún eitthvað með nálina inní hendinni að reyna að finna æðina, það var sko ekki gott Gráta svo stakk hún mig aftur við hliðina á hinni stungunni og hitti ekki í annað skiptið var eitthvað að krukka undir húðinni að finna æðina !!!!!! það tókst ekki svo að hún stakk mig í þriðja skiptið bara vinstra megin við hinar stungurnar og guess what hún hitti EKKI í þriðja skiptið, og enn og aftur var hún að krukka þarna undir og hitti á einvherja pínuæð sem gaf ekkert blóð eiginlega....!!! það var ógeðslega vont.......Micha greyið stendur þarna og lýst ekkert á blikuna, er farin að svitna og líður ekki vel, var næstum liðið yfir hann......greyið litla :D:D en svo færir hún sig hinumegin við rúmið og ætlar stinga mig í fjórða skiptið, hún ætlaði ekki að gefast upp sama hversu oft sem hún hefði þurft að stinga mig.....en hún hittir loksins á æð og það frussast allt útum allt, það var nú soldið fyndið, hehe Micha fór fram, gat ekki horft á þetta......en hann var nú ekki mjög ánægður að það væri verið að pína ástina sína svona.......Koss en ég vil bara þakka honum fyrir stuðninginn þarna og biðina.......
En allaveganna, læknarnir fundu ekkert og eftir 5 tíma bið fékk ég leyfi til að fara heim, fékk 4 verkjatöflur og læknirinn sagði að ég ætti að drífa mig heim, því það tækju verkjalyfin sirka 20 mín að virka ......þannig að ég fór bara heim og steinrotaðist......... en ég þurfti að mæta daginn eftir á kvennadeildina kl 10, vaknaði aðeins of seint en fínt með það allt.......svo fórum við Micha saman þangað og biðum í 1 klukkutíma.......svo fórum við loksins inn og þá var kvennlæknirinn þar, og hann var KALL, en ég lét mig hafa það og hann þukklaði og skoðaði mig alla, fór svo í svona sónar, hehe mjög gaman að sjá þetta allt í sónar.....:P og þá fann hann vandamálið.........og nei ég var ekki ólétt......ég var með blöðru á eggjastokknum sem hafði sprungið því að eggið var að koma niður.......ummmm ok......er það slæmt eða ekki ???? nei nei þetta er víst algengt og líður oftast hjá á sólahring.......en ég fékk verki um kvöldið daginn eftir þannig að ég átti að koma uppeftir um morguninn og átti að kíkja á mig aftur.......þar var hjúkka sem að tók blóðsýni úr mér og stakk hún mig tvisvar áður en hún hitti, þannig að ég er vel götótt........Hissa  þurfti að gefa 2 sinnum þvagsýni.....en þau sáu ekki neitt ....þetta voru semsagt bara verkir eftir blöðruna.....þannig að ég var send heim með lyfseðil .......

En nóg af þessu spítala veseni......er orðin góð og ætla í vinnuna á morgun........og stelpur ef þið fáið svona þá eigiði alla mína samúð......:S

Jæja svo má Lena líka fara að blogga og svona.......greyið að fara í próf og svona..... :D:D

Þetta er allveganna orðið ágætt blogg í bili........Stella kveður í bili............Saklaus
22. nóvember 2006 klukkan 23:06
Aðalheiður Stella Stefánsdóttir
Engin athugasemd
10nóvember

Lonely day.....

Góðan dag, góðan dag lalalalala kann ekki meir Þögull sem gröfin

Jæja þetta er allt að koma hér á síðunni okkar Lenu. Erum að klára að "fínpússa" hana og gerist það mjög sennilega í dag eða kvöld Hlæjandi
En já mér leiðist alveg heil ósköp hér heima er að fara vinna kl 12 og er enn hálf slöpp !!!! og svo er veðrið ekki að bæta þetta alveg, ógeðslegt rok og bara ojj bara....en maður verður að taka þessu ekki annað hægt.....
Ennnnnnnnnn ég ætla að fara að vinna og verða meira veik.....Óákveðinn


En hér er smá til að skoða þegar manni leiðist.......þetta er sniðugt :D

S: Easy to fall in love with
T: Loyal to those you love
E: A damn good kisser
L: Loved by everyone
L: Loved by everyone
A: Likes to drink


A: Likes to drink
B: Likes people
C: Is wild and Crazy
D: Has one of the best personalities ever
E: A damn good kisser
F: People adore you
G: Never let people tell you what to do
H: Have a very good personality and looks
I: Loves everyone
J: Lives for fun
K: Really silly
L: Loved by everyone
M: Makes dating fun
N: Dead sexy
O: Best in bed
P: Popular with all types of people
Q: A hipocrite
R: Fucking Crazy
S: Easy to fall in love with
T: Loyal to those you love
U: Really like to chill
V: Not judgemental
W: Very broad minded
X: Never let people tell you what to wear
Y: One of the best damn bf/gf you could ask for
Z: Always redy

hvað þýðir ykkar nöfn?

p.s. fengum þetta frá síðunni hennar Freyju......tíhí

Stella segir bless, í bili :D
10. nóvember 2006 klukkan 17:34
Aðalheiður Stella Stefánsdóttir
2 athugasemdir
10nóvember

Góða kvöldið!!!!!

Jæja, þá er komið að því að ég og Stella ákváðum að stofna nýja heimasíðu.

Allavega dagurinn hjá mér er bara búin að vera rosa fínn. Hann byrjaði bara þannig fór í skólann skemmti mér konunglega. Síðan féllu 2 tímar niður hjá mér, það var mjög fínt að komast bara heim. Síðan eftir skóla fór ég bara að vinna, var rosa gaman. Alltaf gaman að vinna með skemmtilegu fólki, sem gerir vinnuna bara ennþá skemmtilegri. Í dag var eiginlega ekkert að gera í vinnunni, og vorum við búin frekar snemma. Síðan var ég aðeins að bíða með Andreu eftir að hún var sótt. Síðan fór ég bara heim, reyndar mjög stutt. Þurfti að skreppa síðan til Stellu , hún var svo æðisleg að hjálpa mér að fara yfir ritgerðina hjá mér. Laga svona stafsetningar villur og þannig lagað. Það á greinilega að vera eitthvað brjálað veður í nótt, það er samt ekki alveg búið að skella á. Vonandi kemst ég heimHlæjandi.  Er nokkuð viss um að ég lifi af.
En já með þessa blessuðu síðu þá er allt að koma, tekur bara smátíma. Ætli þetta sé ekki bara gott. Á ég að segja ykkur soldið sniðugt það er helgi á morgun. Vúhúúú... hehe Stella þarf að vinna um helgina ekki ég. 

Lenilíus kveður í bili.

10. nóvember 2006 klukkan 06:06
Aðalheiður Stella Stefánsdóttir
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Atburðarteljari

Könnun

Ertu byrjuð/aður að kaupa jólagjafir ???

Klukkan

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...